Uppbygging jarðar - Skyndipróf
  • 1. Hvert eftirfarandi er ekki innrænt afl?
A) Eldgos
B) Jarðskjálftar
C) Vatnsrof
D) Gliðnun á úthafshryggjum
  • 2. Jörðin er samsett úr efitfarandi?
A) jarðskorpa, möttull og kjarni
B) Belgur, ístra og kviður
C) Kjarni og hismi
D) Kjarni, möttull og hismi
  • 3. Þetta hjálpar vísindamönnum að átta sig á innri gerð jarðar?
A) Eldgos
B) Klettaveggir
C) Jarðskjáftar
D) Jarðboranir
  • 4. Rek Indlandsflekans skapaði einn mesta fjallgarð heims sem heitir?
A) Andesfjöll
B) Himalajafjöll
C) Alparnir
D) Klettafjöll
  • 5. Ísland sem skilgreint er sem heitur reitur er á mörkum hvaða flekamóta?
A) Evrasíufleka og Norður-Ameríkufleka
B) Evrasíufleka og Suður-Ameríkufleka
C) Norður-Ameríkufleka og Suður-Ameríkufleka
D) Evrasíufleka og Afríkufleka
  • 6. Stærsti jarðskjálfti sem orðið hefur á Íslandi varð 22. janúar 1910. En hvar varð hann?
A) Út af Öxarfirði
B) Í Vatnajökli
C) Á suðurlandi
D) Út af Eyjafirði
  • 7. Tsunami er alþjóðlegt orð yfir?
A) Jarðskjálfta
B) Landrek
C) Flóðbylgjur
D) Eldgos
  • 8. Hvert þessara afla telst ekki útrænt afl?
A) Efnaveðrun
B) Vatnsrof
C) Eldgos
D) Veðrun og rof
  • 9. Dæmi um afleiðingar jökulrofs eru?
A) A-laga dalir
B) U-laga dalir
C) V-laga dalir
D) N-laga dalir
  • 10. Hvenær náði síðasta jökulskeið ísaldar hámarki?
A) Í fyrra
B) Fyrir 18 milljón árum síðan
C) Fyrir um 18000 árum síðan
D) Fyrir 8000 árum síðan
Nemendur sem tóku þetta próf tóku einnig :

Búið til með That Quiz — þar sem auðvelt er að búa til og þreyta próf í stærðfræði og öðrum námsgreinum.