- 1. Hárin á húðinni vaxa upp úr:
A) hársekkjum B) fitukirtlum C) svitakirtlum D) taugaþráðum
- 2. Stærsta líffæri mannslíkamans er:
A) húðin B) heilinn C) hjartað D) lungun
- 3. Nýjar húðfrumur myndast stöðugt í:
A) leðurhúðinni B) hornlaginu C) fituvefnum D) vaxtarlaginu
- 4. Húðlagið er 1-4 mm á þykkt og það er með teygjanlegu þræði. Þegar einstaklingurinn eldist brotna þræðirnir niður. Hér er verið að lýsa:
A) húðþekjunni B) undirhúðinni C) leðurhúðinni D) vaxtarlaginu
- 5. Efni í nöglunum kallast:
A) hyrni B) beðmi C) glúkósi D) glýkógen
- 6. Eðlilegur líkamshiti manna er:
A) 30°C B) 37°C C) 42°C D) 39°C
- 7. Þegar einstaklingi verður kalt bregst líkaminn við með því að:
A) framleiða svita B) draga æðarnar í húðinni saman C) víkka æðarnar í húðinni D) leggja hárin að líkamanum
- 8. Dæmi um flöt bein má nefna:
A) bein í handarbaki B) herðablöð C) beinin í lærleggjum D) hryggjarliði
- 9. í rauða beinmergnum myndast:
A) rauðkorn B) heilafrumur C) fita D) taugafrumur
- 10. Á liðamótum eru sterk bönd sem halda heinendunum saman. Þau kallast:
A) liðbönd B) vöðvabönd C) beinbönd D) hjöruliður
- 11. Þegar við brosum notum við:
A) 16 vöðva B) 14 vöðva C) 10 vöðva D) 12 vöðva
- 12. Þessu frumulíffæri fjölgar í frumum við þjálfun. Það heitir:
A) frumuhimna B) kjarni C) leysikorn D) hvatberi
- 13. Til eru dæmi um að tveir ólíkir einstaklingar hafi nákvæmlega eins fingraför.
A) Satt B) Ósatt
- 14. Tölvusneiðmyndir eru meðal annars notaðar til að greina sjúkdóma í heila.
A) Ósatt B) Satt
- 15. Þegar súrefnisskortur verður í vöðvum myndast mjólkursýra.
A) Satt B) Ósatt
- 16. Hverjar eru þrjár helstu gerðir liða í líkamunum?
A) Keiluliður, Hjöruliður og Hverfiliður B) Kúluliður, Hverfiliður og Hjöruliður C) Liðband, Kúluliður og Krossband
- 17. Mjaðmarliður er dæmi um:
A) Hjörulið B) Kúlulið C) Hverfilið
- 18. Húð fullorðins manns vegur um það bil:
A) 4kg B) 3 kg C) 6 kg D) 5 kg
- 19. Í hvaða lagi húðarinnar geymist fitan?
A) Undirhúðinni B) Undirhúðinni C) Leðurhúðinni
- 20. Hvað eru mörg bein í líkama okkar?
A) um 200 B) um 250 C) um 150 D) um 300
- 21. Vöðvarnir í meltingarveginu eru kallaðir:
A) viljastýrðir B) rákóttir C) hrukkóttir D) sléttir
- 22. Hver vöðvaþráður getur verið allt að:
A) nokkrir metrar að lengd B) 30 cm á breidd C) 0,1 mm á breidd D) 10 cm að breidd
- 23. Mjólkursýra stafar meðal annars af skorti á:
A) próteinum B) mjólkursýru C) súrefni D) koltvíoxíði
- 24. Satt eða ósatt: Neglur og hár myndast í húðinni og eru úr lifandi frumum.
A) Ósatt B) Satt
- 25. Satt eða ósatt: Blóðfrumurnar myndast í hvíta blóðmergnum.
A) Ósatt B) Satt
- 26. Satt eða ósatt: Efni beinanna getur ekki endurnýjast.
A) Satt B) Ósatt
- 27. Satt eða ósatt: Í líkmanum er þrenns konar vöðvar, sléttir vöðvar, rákóttir vöðvar og hjartað.
A) Ósatt B) Satt
- 28. Við stjórnum rákóttu vöðvunum með:
A) Viljanum B) Ósjálfrátt
- 29. Usain Bolt er með mikið af:
A) hröðum vöðvaþráðum B) hægum vöðvaþráðum
- 30. Kári Steinn (maraþonhlaupari) er með mikið af:
A) hröðum vöðvaþráðum B) hægum vöðvaþráðum
|