- 1. Eining sem notuð er fyrir kraft er:
A) metri B) vatt C) njúton D) júl
- 2. Sá kraftur jarðar sem verkar á hlut kallast:
A) eðlismassi B) núningur C) þyngd D) þrýstingur
- 3. Sá kraftur sem hamlar alltaf gegn hreyfingu hlutar kallast:
A) núningur B) lyftikraftur C) flotkraftur D) knýr
- 4. Kraftur í straumefnum sem ýtir hlut upp nefnist:
A) flotkraftur B) þyngdarkraftur C) knýr D) viðnám
- 5. Samkvæmt lögmáli Arkimedesar flýtur hlutur í vökva ef:
A) eðlismassi hlutarins er minni en eðlismassi vökvans. B) eðlismassi hlutarins er meiri en eðlismassi vökvans. C) vökvinn er í íláti. D) vökvinn hreyfist hraðar en hluturinn.
- 6. Kraftur við flugvélavæng sem verkar upp og heldur flugvélinni á lofti kallast:
A) núningur B) knýr C) lyftikraftur D) viðnám
- 7. Mótstaðan sem loft veitir gegn hreyfingu flugvélar fram á við nefnist:
A) viðnám B) flotkraftur C) knýr D) nýtni
- 8. Mælikvarði á það hversu hratt vinna er unnin nefnist:
A) nýtni B) kraftahlutfall C) orka D) afl
- 9. Tveir kraftar koma alltaf við sögu þegar vél er notuð. Þeir eru:
A) inntakskraftur og vogarkraftur B) inntakskraftur og skilakraftur C) núningskraftur og skilakraftur D) skilakraftur og afl
- 10. Engin vél vinnur með 100% nýtni vegna áhrifa:
A) smurefna B) flotkrafts C) kraftahlutfalla D) núnings
- 11. Það sem ýtir á hlut eða togar í hann svo að hreyfing hans breytist nefnist:
A) núningur B) vinna C) kraftur
- 12. Ef tveir menn beita 10 nútjona krafti hvor um sig í sömu stefnu verður lokakrafturinn:
A) 0 njúton B) 20 nútjon C) 100 njúton
- 13. Ef ekki kæmi til _________ hlyti hreyfing hlutar að haldast óbreytt.
A) afls B) núnings C) krafts
- 14. Kraftur sem verkar upp á við á hlut í straumefni nefnist:
A) Þrýstingur B) Flotkraftur C) Lyftikraftur D) Þyngdarkraftur
- 15. Lögmálið sem felur í sér að þrýstingur í straumefni á hreyfingu sé minni en í straumefni sem hreyfist ekki kallast lögmál:
A) Newtons B) Arkimedesar C) Bernoullis D) Einsteins
- 16. Í SI-kerfinu er vinna mæld í njútonmetrum eða:
A) Júlum B) Voltum C) Wöttum D) Njútonum
- 17. Eining SI-kerfisins fyrir afl er:
A) Njúton B) Volt C) Vatt D) Júl
- 18. Hugtak sem segir til um hversu oft vél margfaldar inntakskraftinn kallast:
A) Kraftahlutfall B) Vinnuhlutfall C) Nýtnishlutfall
- 19. Fasti punkturinn sem vogarstöng snýst um kallast:
A) Vog B) Hjól C) Stýri D) Vogarás
- 20. Beinn, hallandi flötur er dæmi um einfalda vél sem nefnist:
A) Skáborð B) Taflborð C) Skákborð
- 21. Gormvog er áhald sem oft er notað til þess að mæla kraft.
A) Rangt B) Rétt
- 22. Hlutur sem er með massann 20 kg er á jörðu er 196 njúton á þyngd.
A) Rangt B) Rétt
- 23. Krafturinn sem hamlar gegn hreyfingu hlutar eftir straumefni eða í gegnum það kallast veltnúningur.
A) Rangt B) Rétt
- 24. Olía, vax, smurfeiti og önnur hál og sleip efni kallast smurefni.
A) Rétt B) Rangt
- 25. Kraftur á tiltekna flatarmálseiningu í straumefni kallast flotkraftur.
A) Rangt B) Rétt
- 26. Hlutur flýtur ef hann ryður frá sér minni vökva en sem nemur eigin þyngd hlutarins.
A) Rétt B) Rangt
- 27. Timbur flýtur í vatni vegna þess að eðlismassi þess er meiri en 1 gramm á rúmsentimeter.
A) Rangt B) Rétt
- 28. Tæki sem flytja krafta í vökvum og margfaldað þá kallast vökvaknúin tæki.
A) Rétt B) Rangt
- 29. Forsenda þess að venjuleg flugvél fljúgi er að loftið yfir vængjum hennar hreyfist hægar en loftið við neðra borð vængjanna.
A) Rétt B) Rangt
- 30. Vélar eru tæki sem auðvelda vinnu vegna þess að þær margfalda orku.
A) Rangt B) Rétt
- 31. Á jörðinni er þyngd hlutar sem hefur massann 10 kg:
A) 10 kg B) 980 N C) 98 N D) 10 N
- 32. Múrsteinn sem dreginn er eftir sandpappír leiðir vel í ljós:
A) flotkraft B) straummótstöðu C) renninúning D) veltinúning
- 33. Loftmótstaða er dæmi um
A) veltinúning B) straummótstöðu C) ekkert af þessu D) renninúning
- 34. Hlutur flýtur í vökva þegar hluturinn:
A) hefur meiri þéttleika en vökvinn B) er þyngri í sér en vökvinn C) ryður frá sér vökva sem er léttari en hluturinn sjálfur D) ryður frá sér vökva sem er þyngri en hluturinn sjálfur eða jafnþungur honum
- 35. Eðlismassi hlutar sem er að rúmmáli 2 cm3 og hefur massann 8 g er:
A) 4 cm3/g B) 6 g/cm3 C) 4 g/cm3 D) 0,25 g/cm3
- 36. Krafturinn sem þrýstir vængjum flugvélar upp nefnist :
A) þyngd B) viðnám C) lyftikraftur D) knýr
- 37. Hve mikil vinna er framkvæmd þegar kraftur sem nemur 2 N færir hlut um 6 m?
A) 12 vött B) 3 J C) 12 J D) 3 vött
- 38. Hve mikið rafafl er notað í ljósaperu sem tekur til sín 3000J/mínútu?
A) 600 vött B) 500 vött C) 3000 vött D) 50 vött
- 39. Kraftur sem notandi vélar leggur til hennar nefnist:
A) úttakskraftur B) skilakraftur C) úttaksvinna D) inntakskraftur
- 40. Skrúfjárn er dæmi um:
A) fleyg B) hjól og ás C) trissu D) skrúfu
|